• Sími: 591-0100
  • dukur@dukur.is
Awesome Image

Dúkarar

Dúklagningar og veggfóðrarar, sem oft eru kallaðir "dúkarar", eru faglærðir sveinar eða meistarar. Bóklegi hluti námsins fer fram í Tækniskólanum í Reykjavík og Hafnarfirði. Verklegi hlutinn, sem er sá veigamesti, fer að mestu leyti fram í störfum hjá dúklagninga- og veggfóðrarameisturum. Nú starfa um 70 sveinar og meistarar í faginu á Íslandi.

Awesome Image

Iðgreinin

Iðngreininni tilheyra margs konar klæðningar svo sem veggfóður, skreytiborðar, hersían og fíberstrigi.
Dúkarar leggja gólfteppi og gólfdúka sem lagðir eru bæði á hefðbundinn hátt eða með fjölbreyttum mynstrum. Þeir leggja einnig íþróttagólfefni, hlaupabrautir og hljóðdeyfandi gólfklæðningar og klæða sundlaugar og þök.

Awesome Image

Aðsetur félagsins

Félagið var staðsett í Skipholti 70 í Reykjavík. Félagið byggði það hús ásamt fjórum öðrum meistarafélögum árið 1964 og rak þar skrifstofu sem sinnti erindum félagsmanna og annarra sem leita til félagsins.

Í dag er félagið staðsett í Borgartúni 35 í Reykjavík. Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins.

Sagan

Veggfóðrun

Saga veggfóðrunar í Reykjavík nær aftur til byrjunar 19. aldar. Dúklagnir komu hins vegar ekki til sögunnar fyrr en upp úr 1910.

Byrjun 19. aldar

Árið 1925

Landsímahúsið

Árið 1925 kom enskur maður til bæjarins til að dúkleggja Landssímahúsið. Réðust menn í vinnu til hans og lærðu þeir dúklagnir af honum.

Veggfóðrarafélag Reykjavíkur stofnað

Þremur árum síðar var haldinn fundur í Baðstofu iðnaðarmanna í Reykjavík. Þangað komu 11 veggfóðrarameistarar til að ræða hagsmunamál sín og stofna til samtaka. Á þessum fundi stofnuðu þeir með sér Veggfóðrarafélag Reykjavíkur og fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð:

> Formaður: Victor Kr. Helgason
> Ritari: Sigurður Ingimundarson
> Féhirðir: Björn Björnsson

 

4. mars 1928

24. mars 1928

Fyrstir með uppmælingataxta

Félagsstjórnin hófst þegar handa og þann 24. mars 1928, aðeins þremur vikum eftir fundinn í baðstofunni var gefin út sérstök verðskrá fyrir skilgreind og uppmæld verk. Þetta var fyrsti uppmælingataxti iðnaðarmanna á Íslandi .

Nafn félagsins breytt

Í júlímánuði árið 1932 var nafninu breytt í ,,Meistarafélag veggfóðrara".

Júlí 1932

2001

Nafn félagsins breytt í núverandi nafn

69 árum síðan var nafninu aftur breytt í núverandi heiti sem er ,,Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara". Iðngreinin hefur tekið miklum breytingum á þeim rúmlega sjö áratugum sem síðan hafa liðið. Verkefni félagsmanna hafa þróast og ýmsar áherslubreytingar orðið. Á fyrstu árunum var mest unnið með veggefni en vægi gólfefna hefur aukist á seinni tímum. Þessar breytingar endurspeglast meðal annars í því að nafni félagsins hefur tvívegis verið breytt.

STJÓRNARMENN FÉLAGSINS

Núverandi stjórn félagsins er þannig skipuð:

Hilmar Hansson

Formaður
Símanúmer: 897-1060
Netfang:hilmar@hasar.is

 

Einar Beinteinsson

Varaformaður
Símanúmer: 892-4588
Netfang: einar@eb.is

Þórarinn Steinþórsson

Gjaldkeri
Símanúmer: 6604535
Netfang: golfvegg@internet.is

Garðar Guðjónsson

Meðstjórnandi
Símanúmer: 822-5475

Netfang: gardardukari@gmail.com

Ólafur Jónsson

Ritari
Símanúmer: 699-8008
Netfang: 

Ertu með spurningar? Endilega sendu okkur fyrirspurn!